Heimili höfundanna

Brynhildur Þórarinsdóttir
Brynhildur Þórarinsdóttir
Brynhildur Þórarinsdóttir er fædd árið 1970 og er afkastamikill og margverðlaunaður barnabókahöfundur. Drjúgur hluti verka hennar eru endursagnir á Íslendingasögunum og hlaut hún meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 fyrir endursagnir sínar á Njálu, Eglu og Laxdælu. Brynhildur heldur úti vefnum Íslendingasögur.is fyrir börn og hefur einnig sent frá sér skólaútgáfur af Íslendingasögunum á íslensku og ensku. Af skáldsögum hennar má nefna Leyndardóm ljónsins, en fyrir hana hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin 2004, og Gulbrand Snata og nammisjúku njósnarana sem var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2018. Auk þess að sinna skrifum, hefur Brynhildur verið mjög virk á barnabókmenntasenunni. Hún hefur verið formaður SÍUNG og er í forsvari fyrir Barnabókasetur, sem er rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri. Þá var hún annar af ritstjórum greinasafnsins Í Guðrúnarhúsi (2005) sem fjallar um verk Guðrúnar Helgadóttur. Hún ritstýrði einnig Tímariti Máls og menningar um skeið. Brynhildur býr og starfar á Akureyri. Hún gegnir stöðu dósents í íslensku við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og var bæjarlistamaður Akureyrar 2006–2007.

Bækur eftir höfund

Njala_islenska_72pt
Njála – sagan af Gunnari á Hlíðarenda
4.990 kr.
Smaralindarmori_72pt
Smáralindar-móri
2.990 kr.3.290 kr.
dularfulla hjólahvarfið
Dularfulla hjólahvarfið
3.590 kr.
Gulbrandur Snati
Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir
990 kr.4.190 kr.
Gásagátan
Gásagátan
1.490 kr.1.990 kr.
Leyndardómur ljónsins-rafbók
Dularfulla símahvarfið
Dularfulla símahvarfið
2.590 kr.
Ungfrú fótbolti
Ungfrú fótbolti
990 kr.4.290 kr.
The Saga of Njall
The Saga of Njáll
2.190 kr.
Leyndardómur ljónsins
Leyndardómur ljónsins
990 kr.2.685 kr.
Blávatnsormurinn
Blávatnsormurinn
990 kr.1.990 kr.
Óskabarn
Óskabarn - Bókin um Jón Sig.
2.090 kr.
Nonni og Selma - fjör í fríinu
Nonni og Selma - Fjör í fríinu
990 kr.
attachment-10076
Saga of Njáll, The - barnabók
2.580 kr.
attachment-10074
Egla – barnabók
2.175 kr.
attachment-19019
Njála – barnabók
2.173 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning