Einar Lövdahl
Einar Lövdahl er fæddur í Bandaríkjunum árið 1991 en uppalinn í Reykjavík frá fimm ára aldri. Hann er íslenskufræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur einkum starfað sem blaðamaður og textasmiður á auglýsingastofu auk þess sem hann hefur fengist við tónlist, bæði sína eigin og með tvíeykinu LØV & LJÓN sem hann myndar ásamt Agli Jónssyni. Hann hefur einnig samið texta fyrir aðra flytjendur, s.s. Julian Civilian (Skúla Jónsson), Jóhönnu Guðrúnu, Jón Jónsson og GDRN. Einar skrásetti sögu Aron Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða karlalandsliðsins í knattspyrnu en bókin Aron - sagan mín kom út 2018.
Fyrsta skáldverk Einars Lövdahl, smásagnasafnið Í miðju mannhafi, var önnur tveggja bóka sem báru sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir, árið 2021. Árið 2024 kom út fyrsta skáldsaga Einars, Gegnumtrekkur, sem mæltist vel fyrir hjá íslenskum lesendum jafnt sem erlendum en hún hefur komið út í Danmörku og Ungverjalandi, og er einnig væntanleg í Sviss og Noregi. Haustið 2026 fylgdi hann Gegnumtrekki eftir með skáldsögunni Aðskotahlutir en þar fjallar hann um tilveru Íslendinga í útlöndum.
