Heimili höfundanna

Eiríkur Örn Norðdahl
Eiríkur Örn Norðdahl
Eiríkur Örn Norðdahl, fæddur 1978, hefur verið ötull á ritvellinum síðan hann sendi frá sér sína fyrstu bók, Heilagt stríð: runnið undan rifjum drykkjumanna, 2001. Um svipað leyti stofnaði hann útgáfuna Nýhil með fleiri ungskáldum og undir því merki gaf hann út næstu bækur sínar en fyrsta skáldsaga hans, Hugsjónadruslan, kom út hjá Máli og menningu árið 2004. Eiríkur Örn hefur staðið að ótal menningarviðburðum, meðal annars undir merkjum Nýhils, og tekið þátt í útgáfum ýmissa safnrita. Hann er einnig afkastamikill á netinu þar sem hann gefur meðal annars út menningarritið Starafugl. Eiríkur Örn hefur vakið athygli víða um heim fyrir ljóð sín og flutning á þeim. Eiríkur Örn hefur sent frá sér skáldsögur og ljóð, ritgerðir, ljóðaþýðingar og uppskriftabók. Mörg af skáldverkum hans hafa verið þýdd á erlend tungumál og hlotið góðar viðtökur. Eftir skáldsögunni Illsku var gerð rómuð leiksýning og skáldsagan Hans Blær hóf feril sinn sem leikverk eftir Eirík Örn og leikhópinn Óskabörn ógæfunnar. Eiríkur Örn Norðdahl hefur hlotið viðurkenningu Ljóðstafs Jóns úr Vör og Íslensku þýðingarverðlaunin. Fyrir Illsku hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana og var jafnframt tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá hlaut franska þýðingin af þeirri bók Prix Transfuge du meilleur roman Scandinave og var til nefnd til Prix du meilleur roman étranger og Prix Médicis étranger. Franska þýðingin á Heimsku hlaut síðan Transfug-verðlaunin sem besta norræna skáldsagan á frönsku árið 2017.

Bækur eftir höfund

Naqtturulogmalin_IslBokm
Náttúrulögmálin
3.690 kr.7.290 kr.
Frankensleikir_Kapa.indd
Frankensleikir
1.990 kr.3.990 kr.
EinlaegurOnd_72 pt
Einlægur Önd
1.990 kr.3.990 kr.
Illska
Illska
990 kr.6.215 kr.
Spessi 1990 - 2020
Spessi 1990 - 2020
10.990 kr.
Brúin yfir Tangagötuna
Brúin yfir Tangagötuna
1.490 kr.3.490 kr.
Hans Blær
Hans Blær
990 kr.3.390 kr.
Oratorrek
Óratorrek: ljóð um samfélagsleg málefni
1.290 kr.3.290 kr.
Plokkfiskbókin
Plokkfiskbókin
2.190 kr.
Heimska
Heimska
990 kr.3.390 kr.
attachment-626589
Hnefi eða vitstola orð
2.685 kr.
Elskar mig, elskar mig ekki
Elskar mig, elskar mig ekki
2.690 kr.
attachment-19307
Gæska
1.290 kr.2.065 kr.
attachment-9703
Ú á fasismann
990 kr.
Maíkonungurinn: úrvalsljóð
Maíkonungurinn: úrvalsljóð
2.325 kr.
attachment-14220
Eitur fyrir byrjendur
1.550 kr.
attachment-9705
Hugsjónadruslan
990 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning