Elísabet Jökulsdóttir

Elísabet Kristín Jökulsdóttir er fædd í Reykjavík 16. apríl 1958. Fyrsta bók hennar, ljóðabókin Dans í lokuðu herbergi, kom út árið 1989 og síðan hefur hún sent frá sér ljóð, sögur og skáldsögur. Hún hefur skrifað fjölda leikrita sem sett hafa verið upp hér á landi og erlendis og framið ýmsa gjörninga sem hafa meðal annars birst í Ríkissjónvarpinu. Ljóð hennar hafa birst í safnbókum og tímaritum hér heima og erlendis. Árið 2021 fékk Elísabet Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Aprílsólarkuldi sem byggð er á sögu Elísabetar og fylgdi henni eftir tveimur árum síðar með bókinni Saknaðarilmur þar sem hún fjallar um samband sitt við móður sína, Jóhönnu Kristjónsdóttur. Unnur Ösp Stefánsdóttir skrifaði leikritið Saknaðarilmur upp úr þeim bókum en leiksýning hennar gekk á fjölum Þjóðleikhússins í nokkur leikár og hlaut Grímuverðlaunin 2024 fyrir sýningu ársins og leikrit ársins.

02

INNskráning

Nýskráning