Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, skáld, ritstjóri og pistlahöfundur, fæddist í Reykjavík 31. desember 1957. Hann er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands.
Guðmundur Andri hefur starfað sem blaðamaður, gagnrýnandi, þáttagerðamaður og ritstjóri. Hann er þekktur fyrir pistla sína í Fréttablaðinu en þó fyrst og fremst sem rithöfundur. Fyrsta skáldsaga hans, Mín káta angist, kom út 1988. Hann hefur síðan sent frá sér allmargar skáldsögur sem hlotið hafa góðar viðtökur. Íslenski draumurinn hlaut menningarverðlaun DV í bókmenntum 1991 og var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Íslandsförin var líka tilnefnd til þeirra verðlauna 1996, svo og Sæmd 2013, og sagnasveigurinn Valeyrarvalsinn var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2013. Guðmundur Andri hefur einnig þýtt ýmsar bækur og hlaut barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur 2008 fyrir þýðingu sína á Bangsímon.
Guðmundur Andri er ritstjóri Tímarits Máls og menningar.