Gunnar Helgason

Gunnar Helgason er fæddur 24. nóvember 1965. Hann er leikari, leikstjóri, dagskrárgerðarmaður fyrir sjónvarp og rithöfundur. Fyrsta bók hans, Goggi og Grjóni, kom út árið 1992 og síðan hefur Gunnar skrifað fjölmargar barnabækur, þar á meðal geysivinsælar bækur um fótboltastrákinn Jón Jónsson, tíu ástsælar Stellubækur, Rotturnar í Hafnarlandi og þríleikinn um Alexander Daníel Hermann Dawidsson (ADHD). Gunnar fékk Vorvindaverðlaun IBBY árið 2013 fyrir fótboltabækur sínar og Bókaverðlaun barnanna fyrir bækurnar Aukaspyrna á Akureyri (2012), Rangstæður í Reykjavík (2013), Mamma klikk! (2015), Pabbi prófessor (2016), Amma best (2017) og Siggi sítróna (2018). Gunnar hefur í tvígang verið tilnefndur til Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna fyrir hönd Íslands og árið 2023 var hann tilnefndur til heiðursverðlauna IBBY fyrir Bannað að ljúga. Gunnar hefur tvisvar hlotið Íslensku bókmenntaverðlaun í flokki barna- og ungmennabóka, árið 2015 fyrir bók sína Mamma klikk og 2024 fyrir Bannað að drepa, síðustu bókina í ADHD-þríleiknum.
Gunnar hefur einstakt vald á því að skrifa fyrir börn og aðdáendur hans eru ófáir og á öllum aldri. Bækur Gunnars eru allar alveg hryllilega fyndnar en svo geta þær líka verið sorglegar, fallegar og undurblíðar.

Gunnar Helgason

INNskráning

Nýskráning