Gunnar Theodór Eggertsson

Gunnar Theodór Eggertsson er fæddur árið 1982 og er með gráðu í bæði kvikmynda- og bókmenntafræði, enda eru skrif hans undir sterkum áhrifum frá kvikmyndum. Hann er einstaklega frjór og hugmyndaríkur höfundur og hafa þeir hæfileikar notið sín til hins ýtrasta í vinsælum barna- og ungmennabókum hans sem eru af ætt furðusagna.

 

Gunnar er jafnan með mörg járn í eldinum því hann hefur einnig skrifað skáldsögur með hryllingsívafi fyrir fullorðna lesendur, kvikmyndahandrit og tölvuleiki. Gunnar hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2008 fyrir fyrstu barnabók sína Steindýrin og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2015 fyrir Drauga-Dísu.

Hofundar_400x400ps_sh_400 x 400

INNskráning

Nýskráning