Heimili höfundanna

Jóhannes úr Kötlum
Jóhannes úr Kötlum
Jóhannes (Jóhannes Bjarni Jónasson) úr Kötlum var fæddur að Goddastöðum í Dölum 4. nóvember 1899 og lést í Reykjavík 27. apríl 1972. Hann var barnakennari á árunum 1917 til 1932 en eftir það stundaði hann ritstörf. Jóhannes er kunnastur fyrir ljóð sín en hann sendi einnig frá sér skáldsögur, ljóðaþýðingar, ritgerðir og greinar. Fyrsta ljóðabók Jóhannesar kom út 1926 og nefndist Bí, bí og blaka og sú síðasta, Ný og nið, kom út 1970. Ljóðabækur Jóhannesar urðu tuttugu talsins og þar af eru fimm fyrir börn: Jólin koma (1932), Ömmusögur (1933), Bakkabræður (1941), Ljóðið um Labbakút (1946) og Vísur Ingu Dóru (1959). Ljóðasafn hans fyrir fullorðna var gefið út í átta bindum á árunum 1972-'76 og tíunda bindinu með barnaljóðum var bætt við 1984. Þetta safn er uppselt en vorið 2010 var gefið út Ljóðaúrval Jóhannesar í einni fallegri bók með inngangi eftir Silju Aðalsteinsdóttur. Þar er eingöngu valið úr ljóðabókum skáldsins fyrir fullorðna.

Bækur eftir höfund

Jolin_koma_polsk_72
Idą święta (Jólin koma, pólsk)
2.690 kr.3.390 kr.
Jolin_okkar_72pt
Jólin okkar
2.990 kr.
Jólin koma
Jólin koma
1.290 kr.3.390 kr.
Sóley sólufegri
Sóley sólufegri: um Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum og tónstef Péturs Pálssonar
3.390 kr.
Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum
Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum
2.490 kr.
Christmas is coming
Christmas is coming
2.390 kr.
attachment-566059
Ljóðaúrval Jóhannesar úr Kötlum
3.930 kr.
attachment-9938
Ljóðið um Labbakút
790 kr.
imageedit_1_2933404013
Vísur Ingu Dóru
790 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning