Jón Atli Jónasson

Jón Atli Jónasson (f. 1972) er margverðlaunað leikskáld og handritahöfundur. Leikverk hans hafa verið sett upp víða um Evrópu og hann er einn af stofnendum Mindgroup, sem eru evrópsk regnhlífarsamtök leikhúsfólks sem vinnur að tilraunakenndri leiklist. Jón Atli var fyrsta leikskáldið til að fá styrk úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur.

Jón Atli hefur einnig skrifað nokkur kvikmyndahandrit, þar á meðal Djúpið sem tilnefnt var til Óskarsverðlaunanna 2015, og hann hefur þrisvar verið tilnefndur til Norrænu kvikmyndaverðlaunanna. 2011 var hann valinn Útvarpsleikritahöfundur Norðurlanda og útvarpsleikrit hans um Guðmundar- og Geirfinnsmálið lenti í þriðja sæti Prix Europa-verðlaunanna 2017.

Meðfram leikritun og handritagerð hefur Jón Atli skrifað bæði smásögur og skáldsögur. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að glæpasagnaskrifum.

J├│n Atli

INNskráning

Nýskráning