Jón Páll Halldórsson

Jón Páll Halldórsson (f. 1974) er fjölhæfur listamaður sem hefur komið víða við, hefur meðal annars unnið við tölvuleikjahönnun hjá CCP og við framleiðslu sjónvarpsþáttanna um Latabæ. Hann er einnig vel þekktur og eftirsóttur húðflúrslistamaður. Jón Páll er annar höfunda myndasögunnar Vargaldar sem kom út á árunum 2016–2026 og fjallar um goð og menn á heiðnum tíma. Sagan hlaut bæði tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar.

Jón Páll Halldórsson

INNskráning

Nýskráning