Jónína er fædd í Reykjavík 16. maí 1954. Hún lauk stúdentsprófi úr fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík og BA-prófi í ensku og bókmenntafræðum frá Háskóla Íslands. Einnig stundaði hún nám við Essex-háskóla í Bretlandi.
Jónína hefur skrifað æviminningabækur, skáldsögur, barna- og unglingabækur og fjölda smásagna. Leikrit eftir Jónínu hafa verið sýnd í Sjónvarpinu og verk eftir hana verið flutt í Útvarpsleikhúsinu. Auk þess var leikrit hennar, Leyndarmál, flutt í þremur framhaldsskólum og stuttir leikþættir eftir Jónínu hafa verið sýndir vítt og breitt um landið.
Fyrsta frumsamda bók Jónínu var Guð almáttugur hjálpi þér, ævisaga séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, sem út kom 1988. Árið 1993 kom unglingabókin Sundur og saman en fyrsta skáldsaga Jónínu fyrir fullorðna, Þríleikur, kom út 1994. Árið 2013 sendi Jónína frá sér bókina Við Jóhanna, sem er ástarsaga hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, og hlaut hún mjög góðar viðtökur.
Í janúar 2008 hlaut Jónína Ljóðstaf Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar. Einnig hefur hún hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir smásögur og leikverk og árið 2009 hlaut hún viðurkenningu IBBY á Íslandi fyrir skrif sín fyrir unglinga.
Jónína starfaði sem blaðamaður og ritstjóri um tveggja áratuga skeið og þýddi skáldsögur og bækur af öðrum toga. Frá árinu 2006 hefur hún unnið alfarið við bókaskrif. Árið 2016 kom fyrsta glæpasaga Jónínu út, Konan í blokkinni, og er hún tilnefnd til íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans. Önnur bókin í þessum nýja bókaflokki, Stúlkan sem enginn saknaði, kom út í ársbyrjun 2017.