Magnús Lyngdal Magnússon
Magnús Lyngdal Magnússon lauk prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands og prófi í trompetleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Hann hefur verið tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins um árabil, fjallar reglulega um klassíska tónlist í Ríkisútvarpinu og hefur kennt á vinsælum námskeiðum um klassíska tónlist og óperur hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Magnús hefur skrifað handbækur um klassíska tónlist en einnig gefið út sagnfræðirit og skáldsögu.