Melkorka Ólafsdóttir

Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari, skáld og dagskrárgerðarmaður (f. 1981) hefur skrifað ljóð frá barnsaldri. Hún er með háskólagráður í ritlist, tónlist og sálfræði og hefur bæði gefið út verk í eigin nafni sem og með skáldahópnum Svikaskáldum. Skáldsaga þeirra Olía hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021 og ljóðabókin Flagsól, sem Melkorka gerði í samstarfi við myndhöfundinn Hlíf Unu Bárudóttur, var tilnefnd til Maístjörnunnar 2024.

INNskráning

Nýskráning