Nína Ólafsdóttir

Nína Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1986, uppalin í Breiðholti en í dag búsett á Akureyri ásamt eiginmanni og syni. Hún lauk B.Sc. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2013 og M.Sc. prófi frá Háskólanum á Hólum og Háskólasetrinu á Svalbarða árið 2015, þar sem hún lagði áherslu á vatna- og sjávarvistfræði. Nína hefur starfað sem líffræðingur frá námslokum, lengst af á starfstöð Hafrannsóknarstofnunar á Snæfellsnesi, en frá árinu 2020 hefur hún sinnt rannsóknum í lausamennsku og starfað sem leiðsögumaður meðfram skrifum og öðrum verkefnum.

Hún hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2022 fyrir handritið að Þú sem ert á jörðu, sem er hennar fyrsta bók. Nína er náttúrubarn, umhverfissinni og ötul útivistarkona og verk hennar bera þess glöggt merki – sjónarhornið á náttúru er einstakt og umhverfislýsingar eru myndrænar, í senn ljóðrænar og nákvæmar, allt að því vísindalegar.

nina_500x500

INNskráning

Nýskráning