Satu Rämö er fædd í Finnlandi árið 1980 en hefur búið um árabil á Íslandi, undanfarin ár á Ísafirði. Hún lærði hagfræði í heimalandinu og kom fyrst til Íslands sem skiptinemi en ílentist hér og menntaði sig í norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og menningu. Ekki leið á löngu þar til Satu fór að skrifa bækur og hún hefur átt farsælan feril í Finnlandi, framan af einkum sem höfundur ferðabóka um Ísland, íslenskrar prjónabókar og annars óskáldaðs efnis. Árið 2022 kom fyrsta glæpasaga hennar, um ísfirsku lögreglukonuna Hildi, út á finnsku, sló rækilega í gegn og varð metsölubók í Finnlandi og fleiri Evrópulöndum, sem og hér heima þegar hún kom út á íslensku árið 2024. Í kjölfarið fylgdu fleiri bækur með sömu aðalpersónum og nú hafa verið gerðir sjónvarpsþættir upp úr þessum geysivinsæla bókaflokki.
