Sigríður Víðis Jónsdóttir er fædd árið 1979. Hún er með BA-gráðu í heimspeki og mannfræði og meistarapróf í þróunar- og átakafræðum. Sigríður hefur meðal annars starfað sem blaðamaður, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi og aðstoðarmaður ráðherra.
Árið 2011 kom út bók Sigríðar Ríkisfang: Ekkert en þar segir hún sögu átta palestínskra kvenna sem flúðu ásamt fjölskyldum sínum úr flóttamannabúðum í Írak og fengu hæli á Akranesi. Bókin vakti mikla athygli og hlaut viðurkenningu Hagþenkis auk þess sem hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. Í Vegabréf: Íslenskt – frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó, sem kom út 2022, segir Sigríður frá ferðum sínum víða um heim, gjarnan á átakasvæði, og miðlar heimssögunni í gegnum frásagnir af fólkinu sem hún hittir á hverjum stað. Var sú bók einnig tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.
