Sigrún Alba Sigurðardóttir

Sigrún Alba Sigurðardóttir (f. 1973) er með cand. mag.-próf í menningarfræði og menningarmiðlun frá Kaupmannahafnarháskóla en hefur einnig lagt stund á nám í sagnfræði og bókmenntafræði. Hún hefur sinnt háskólakennslu og sýningarstjórn um árabil, jafnframt því að stunda umfangsmikil fræðistörf, en í störfum sínum hefur hún leitast við að tengja saman ólíkar fræðigreinar, svo sem heimspeki, listfræði og menningarfræði, og vinna á skapandi hátt úr hefðbundnum fræðitextum. Auk fjölda fræðigreina um menningu, listir – ekki síst ljósmyndir og arkitektúr – og söguleg og heimspekileg efni hefur hún skrifað allnokkrar bækur um sömu viðfangsefni og ritstýrt öðrum. Enn fremur hefur hún sent frá sér skáldsögu og minningabók.

Sigrún Alba býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni en hefur dvalið langdvölum við nám og störf í Kaupmannahöfn.

sigrun-alba500x500

INNskráning

Nýskráning