Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst 1973 á Akranesi. Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998. Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, kom út árið 1999. Ári síðar kom út ljóðabókin Hnattflug sem hlaut góðan meðbyr og var valin besta ljóðabók vertíðarinnar af starfsfólki bókaverslana. Í bókinni er ferðast um borgir, götur, fjöll, höf og aðra raunverulega staði í myndrænum ljóðum. Í kjölfarið hafa fylgt örsagnasöfn, fleiri ljóðabækur og ýmis önnur skáldverk, ásamt textum í samvinnuverk. Fyrir skáldsöguna Sólar sögu hlaut Sigurbjörg Bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar sem kennd eru við Tómas Guðmundsson árið 2002 og ljóðsagan Blysfarir var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Sigurbjörg hefur komið fram á ljóðahátíðum í ýmsum löndum og fjallað hefur verið um ljóðagerð hennar í króatísku, hollensku og dönsku bókmenntapressunni svo nokkuð sé nefnt. Á Ítalíu hlaut hún árið 2021 samtímaljóðlistarverðlaunin Premio Ciampi, sem árlega eru veitt einu ítölsku skáldi og einu erlendu. Við það tækifæri var gefið út tvímála ljóðasafnið Cicatrici, í þýðingu Silviu Cosimini. Af leikverkum má nefna Þrjár Maríur á Litla sviði Borgarleikhússins, uppistandið Maður og kona: Egglos hjá LA og leikgerð Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Styttri leikþættir hafa verið sýndir í Kaupmannahöfn og Lundúnum.
Ljósmynd af höfundi: Árni Sæberg