Heimili höfundanna

Snæbjörn Arngrímsson
Snæbjörn Arngrímsson
Snæbjörn Arngrímsson er fæddur í nóvember árið 1961. Fyrstu æviárin bjó hann á Odda á Rangárvöllum en flutti til Reykjavíkur árið 1964. Hann varð stúdent frá MH árið 1980. Stundaði nám í sálfræði og bókmenntum við Háskóla Íslands. Samhliða námi stofnaði Snæbjörn bókaforlagið Bjart og hóf síðar einnig bókaútgáfurekstur í Danmörku og setti á laggirnar forlagið Hr. Ferdinand. Síðla árs 2017 seldi Snæbjörn öll forlög sín og hætti bókaútgáfu. Snæbjörn hefur í gegnum tíðina verið virkur þýðandi og þýtt á annan tug bóka. Fyrsta frumsamda skáldverk hans var barnabókin Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins. Fyrir hana fékk hann íslensku barnabókaverðlaunin árið 2019. Ári síðar kom sjálfstætt framhald, Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf, en sú fékk Barnabókaverðlaun Reykjavíkur. Síðasta bókin í Álftabæjarþríleiknum, Handbók Gullgrafarans, kom út haustið 2021. Í barnabókum sínum skapar Snæbjörn töfrandi og jafnframt svolítið ógnvekjandi ævintýraheim, þar sem vinátta aðalpersónanna Millu og Guðjóns G. Georgssonar er tindrandi leiðarhnoð í spennandi framvindu. Einstakur þríleikur sem bæði börn og fullorðnir hafa tekið ástfóstri við.

Bækur eftir höfund

HIN_UTVALDA_front
Hin útvalda
4.090 kr.
EittSattOrd
Eitt satt orð
3.490 kr.3.690 kr.
Handbok_gullgrafarans_72
Handbók gullgrafarans
1.990 kr.4.490 kr.
Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf
Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf
1.490 kr.4.290 kr.
Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins
Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins
990 kr.4.290 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning