Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir

Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir (f. 1996) er fiðluleikari, myndskreytir og hreyfimyndasmiður. Sólrún var lengi búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún stundaði meistaranám í fiðluleik við Konunglega danska tónlistarháskólann en hún starfar nú hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

Haustið 2020 kom út bókin Hvíti björninn og litli maurinn eftir José Federico Barcelona (þýðing Ólafur Páll Jónsson) með myndskreytingum hennar, en sama ár unnu þau Tómas Zoëga samkeppni um jóladagatal Borgarbókasafnsins með sögunni Nornin í eldhúsinu. Þau Tómas héldu farsælu samstarfi sínu áfram og gerðu þrjár bækur enn um sömu persónur en önnur sagan í röðinni, Skrímslavinafélagið, var bæði tilnefnd til Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar.

 

Sólrún hefur jafnframt sinnt hreyfimyndagerð og -kennslu, en meðal verka hennar á þeim vettvangi eru Marglita marglyttan (2018) og Eldhús eftir máli (2020) sem var frumsýnd á RIFF sama ár.

solrun-9763

INNskráning

Nýskráning