Sunna Dís Másdóttir

Sunna Dís Másdóttir (f.1983) er með MA-próf í bæði ritlist og hagnýtri menningarmiðlun. Fyrsta ljóðabók Sunnu, Plómur, kom út haustið 2022 og tveimur árum síðar sendi hún frá sér skáldsöguna Kul. Þá hafa smásögur eftir hana birst í Tímariti Máls og menningar og Iceland Review.

Sunna er jafnframt ein Svikaskálda sem hafa gefið út ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur, Nú sker ég netin mín og Ég er það sem ég sef sem og skáldsöguna Olíu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021.

Sunna starfar jafnframt sem leiðbeinandi í ritlist, ritstjóri og þýðandi.

SunnaDisMasdottir_SagaSig

INNskráning

Nýskráning