Vilhelm Anton Jónsson

Vilhelm Anton Jónsson (f. 1978) er fjöllistamaður, gjarnan kenndur við hljómsveit sína 200.000 Naglbítar. Hann hefur leikið í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum en auk þess stýrt vinsælum spurningaþáttum í útvarpi og verið spurningahöfundur og dómari í Gettu betur.

Vísindabækur hans fyrir krakka nutu mikilla vinsælda á árunum 2013–18 og hlaut sú fyrsta, Vísindabók Villa, Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana en auk þess tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Menningarverðlauna DV. Síðar sneri hann sér að því að skrifa skáldsögur fyrir efstu bekki grunnskóla sem gerast í hafdjúpunum og kom sú fyrsta, Strákurinn með sægrænu augun, út haustið 2026.

vilhelmanton_vefur - Saga Sig 2026 copy

INNskráning

Nýskráning