Ísak Harðarson látinn

Ísak Harðarson skáld lést á krabbameinsdeild Landspítalans að morgni föstudagsins 12. maí eftir stutt veikindi. Ísak fæddist í Reykjavík þann 11. ágúst árið 1956. Hann lauk stúdentsprófi 1977 og stundaði síðan nám við Kennaraháskóla Íslands auk íslenskunáms við Háskóla Íslands. Ísak sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina ,,Þriggja orða nafn“, árið 1982 og síðan hefur hann gefið út fjölda ljóðabóka, smásagnasöfn, skáldsögu og endurminningabók auk þess sem hann var mikilvirkur þýðandi. Ísak hlaut Rithöfundaverðlaun Ríkisútvarpsins árið 1994 og hann var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011 fyrir bók sína ,,Rennur upp um nótt“. Ísak var þekktur fyrir sterkt og frumlegt myndmál í ljóðum sínum og sterkan trúarþráð en hann virtist ofurnæmur fyrir straumum samtímans. Þótt viðfangsefnin hafi oft verið alvarleg og myrk þá voru verk hans oftar en ekki full af hugmyndaauðgi, leikgleði og húmor. Ísak lætur eftir sig tvær dætur sem hann eignaðist með Ólöfu Garðarsdóttur.

Forlagið sendir ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur.

Stokkseyri – tónverk Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar við ljóð Ísaks Harðarsonar

 

 

Steinsnar

Elliheimilið og fjósið
– bara steinsnar
á milli

Kýrnar jórtrandi
á básunum og gamla fólkið
í minningunum

Bráðum
verður þeim hleypt
út í ljósið!

Bara steinsnar á milli

 

(úr Stokkseyri 1994)

 

INNskráning

Nýskráning