Forlagið auglýsir eftir handritum fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin 2022

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2022. Efnið er frjálst að vanda en má þó gjarnan innihalda frumlegt fjör eða nagandi spennu eða nístandi sorg eða allt af þessu, eins og þykir sæma lesendum einhvers staðar á aldursbilinu 6-18 ára. Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd. Skilafrestur er til og með 1. febrúar 2022. Handritið á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar, símanúmer og netfang þarf að fylgja með í lokuðu umslagi.

 

Handritum skal skila í fjórum eintökum til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka

Forlagið

Bræðraborgarstíg 7

101 Reykjavík

 

Að Íslensku barnabókaverðlaunum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi. Dómnefnd skipuð fulltrúum þeirra, auk tveggja nemenda úr 8. bekk, velur sigurhandritið sem kemur út hjá Forlaginu haustið 2022. Verðlaunin nema 750.000 krónum auk höfundarlauna.

 

Verðlaunasjóðurinn áskilur sér rétt til að veita ekki verðlaunin ef ekkert handrit berst sem uppfyllir kröfur dómnefndar.

INNskráning

Nýskráning