Jólabókaflóð!

Jólabókaflóðið er við það að ná hámarki og hart er barist á búðarborðum og á metsölulistum. Um fátt er meira skrafað en efni jólabóka, uppljóstranir í ævisögum, plott og persónusköpun í skáldsögum. Menn velta fyrir sér arfleifð Gunnars Thoroddsen og þrefa um hvort nýútkomnar bækur séu þær bestu sem frá viðkomandi höfundi hafa komið. Allt eins og vera ber hjá „bókaþjóðinni“. Útgáfulisti Forlagsins er einstaklega fjölskrúðugur og glæsilegur fyrir þessi jól eins og löngum fyrr, og sér þess meðal annars stað á metsölulistum sem nú eru birtir vikulega eða oftar. Er ekki úr vegi að staldra eilítið við og skyggnast um.

Skáldsögur
Eins og endranær gnæfir nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Furðustrandir, yfir alla aðra á listum yfir mest seldu skáldsögurnar – enginn virðist geta ógnað yfirburðavinsældum hans. En fleiri íslensk skáldverk hafa líka verið að gera það gott. Má þar nefna Ljósu Kristínar Steinsdóttur sem hlotið hefur afar góðar viðtökur og ný prentun er á leið í verslanir. Hið sama má segja um sakamálasöguna Morgunengil eftir Árna Þórarinssonar, æviskáldsögu Einars Kárasonar, Mér er skemmt, og nýja skáldsögu Braga Ólafssonar sem heitir því þjála nafni Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson (sem tilnefnd er til Íslensku bókmenntaverðlaunanna)  – fyrstu upplög eru á þrotum en nýjar prentanir væntanlegar. Ljósa situr í 4. sæti lista Eymundsson yfir innbundin skáldverk og í því 3. á lista Félags ísl. Bókaútgefenda (FÍBÚT), Morgunengill í 5. sæti á skáldverkalista FÍBÚT og því 7. á lista Eymundsson og Mér er skemmt í 7. sæti á skáldsagnalista FÍBÚT og því 8. á lista Eymundsson. Og Handritið að kvikmynd … er í 6. sæti á skáldsagnalista FÍBÚT. Loks er vert að minna á hina makalausu sögu finnsk-eistnesku skáldkonunnar Sofi Oksanen, Hreinsun, sem er löngu búið að endurprenta og situr bókin nú í efsta sæti á lista FÍBÚT yfir þýdd skáldverk og í 6. sæti á lista Eymundsson yfir innbundin skáldverk.

Ævisögur og bækur almenns efnis
Í flokki ævisagna ber velgengni ævisögu Gunnars Thoroddsen hæst enda einstaklega áhugavert og vandað rit sem m.a. hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum. Fyrsta upplag mun þrotið og ný prentun er væntanleg. Bókin er efst á lista FÍBÚT í flokki ævisagna og í 2. sæti á lista Eymundsson yfir handbækur, ævisögur og fræðibækur. Sama má segja um bók Sigrúnar Pálsdóttur um Þóru biskups, hún hefur hlotið afar góðar viðtökur (og tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna) og ný prentun var að koma í verslanir. Þóra biskups er í 4. sæti á ævisagnalista FÍBÚT og í því 6. á lista Eymundsson yfir handbækur, ævisögur og fræðibækur. Þá hefur fjörlega saga handboltakappans Loga Geirssonar, 10.10.10, rokið út og upplagið mun þrotið en ný prentun á leiðinni. Saga Loga er m.a. í 6. sæti ævisagnalista FÍBÚT. Ný prentun sögu hins ástsæla söngvara Kristjáns Jóhannssonar, Á valdi örlaganna, er væntanleg á næstu dögum en hún hefur gert það gott í flokki ævisagna eins og raunar saga annars listamanns, Alvara leiksins um Gunnar Eyjólfsson. Sá síðarnefndi er í 3. sæti ævisagnalista FÍBÚT og því 10. á samsvarandi lista Eymundsson en Kristján Jóhannsson í 7. sæti ævisagnalista FÍBÚT.

Barnabækur
Enginn virðist komast með tærnar þar sem Þorgrímur Þráinsson hefur hælana enda maðurinn ekki einhamur og trónir með tvær bækur í efstu sætum barnabókalistanna, Þokuna og verðlaunabókina Ertu guð afi? Ný prentun þeirrar síðarnefndu er þegar komin í verslanir og ný prentun þeirrar fyrri er á leiðinni. Þokan er í 2. sæti á bæði barnabókalista Eymundsson og FÍBÚT og Ertu guð afi? í því 3. hjá FÍBÚT og 6. hjá Eymundsson. Enn má nefna hina skemmtilegu barnasögu Guðrúnar Helgadóttur, Lítil saga um latan unga, sem vermir 6. sæti barnabókalista FÍBÚT og það 7. hjá Eymundsson.

Það er því morgunljóst að margar góðar bækur munu koma upp úr jólapökkunum í ár eins og fyrri ár og yfir því gleðjumst við.

INNskráning

Nýskráning