Kirkus Reviews, Sunday Times og Chicago Public Library hafa valið Strandaglópa! sem eina af bestu barnabókum ársins!

Kirkus Reviews, Sunday Times og Chicago Public Library hafa valið Strandaglópa! eftir Ævar Þór Benediktsson sem eina af bestu barnabókum ársins!

Strandaglópar! (Næstum því) alveg sönn saga er fyndin og fróðleg bók en í henni segir Ævar frá því þegar tveir landkönnuðir verða strandaglópar í Surtsey, nýmyndaðri eldfjallaeyju. Félagarnir standa frammi fyrir ýmsum áskorunum áður en þeim er loks bjargað. Bókin er ríkulega myndlýst af Anne Wilson.

Bókin var fyrst gefin út í Bandaríkjunum af Barefoot Books en þau báðu Ævar að skrifa bókina til að fræða krakka um Surtsey. Þess ber að geta að eyjan fagnaði 60 ára afmæli þann 14. nóvember.

INNskráning

Nýskráning