Konráðs-bækur Arnaldar á leið á sjónvarpsskjáinn

Glassriver tryggir sér sjónvarpsréttinn á bókaseríu eftir stærsta glæpasagnahöfund Íslands, Arnald Indriðason.


Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtækið Glassriver tilkynnti í dag að það hafi tryggt sér sjónvarpsréttinn fyrir Konráðs bókaseríuna eftir metsöluhöfundinn Arnald Indriðason. Með þessu bætist Konráð við öflugt verkefnalistann hjá Glassriver, sem samanstendur af vönduðum íslenskum dramaþáttum fyrir alþjóðamarkaðinn.

Þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir Arnald er gert að sjónvarpsseríu. Fyrri kvikmyndaaðlögun hans eru meðal annars Napóleonsskjölin (2023) og Mýrin (2006).

Bókaserían um Konráð, sem telur sjö bækur, segir frá fyrrverandi rannsóknarlögreglumanninum Konráði í Reykjavík, sem glímir við eigin erfiða fortíð á sama tíma og hann leysir óupplýst mál. Þótt hann sé hættur störfum finnur hann sig ófær um að hunsa þau óleystu glæpamál sem ásækja bæði fórnarlömb og aðstandendur þeirra.

Þættirnir gerast í Reykjavík og kanna þemu eins og missi, endurlausn og varanleg áhrif ofbeldis, á sama tíma og Konráð tekst á við eigin eftirsjá og fortíð.

Bækur Arnaldar, þar á meðal hin geysivinsæla bókasería um Erlend, hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og eru meðal vinsælustu íslenskra skáldsagna á heimsvísu. Verk hans hafa hlotið lof gagnrýnenda fyrir að takast á við samfélagsleg málefni sem ná langt út fyrir landamæri Íslands. Hann hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna, þar á meðal CWA Gold Dagger, Glass Key verðlaunin og Martin Beck verðlaunin.

Konráð-serían bætist við verkefni Glassriver í flokki vandaðra leikins þátta, sem nú þegar innihalda spennuþáttaröðina Manifesto og bókatrílógíuna Reykjavík Noir eftir Lilju Sigurðardóttur, sem einnig hefur verið tryggð til aðlögunar.

Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri og aðalframleiðandi Glassriver, segir:
„Arnaldi Indriðasyni hefur verið sýnd mikil virðing á heimsvísu fyrir glæpasögur sínar. Konráð röðin fjallar um flókin óleyst mál og endurspeglar jafnframt íslenska menningu og samfélagsleg málefni sem hafa alþjóðlegt gildi – sem gerir þetta að fullkomnu verkefni fyrir sívaxandi verkefnalista Glassriver. Við erum upp með okkur að fá að færa þessi verk á skjáinn.“

Arnaldur Indriðason segir:
„Ég er afar ánægður með að samkomulag hafi náðst við Glassriver um að aðlaga bækur mínar fyrir sjónvarp. Ég hef fulla trú á að þeim muni takast að færa sögur Konráðs rannsóknarlögreglumanns á skjáinn af kostgæfni og leggja áherslu á bæði frásagnarblæ þeirra og samfélagslegt gildi verka minna.“

Stella Soffía Jóhannesdóttir, réttindastjóri hjá Reykjavík Literary Agency, bætir við:
„Við erum yfir okkur hrifin að sjá Konráð rannsóknarlögreglumann fá líf á skjánum. Bækur Arnaldar eru snilldarlega samdar og það er spennandi að sjá þessar ríku persónur og kröftugu sögur ná til nýrra áhorfenda.“


Um Glassriver

Glassriver er leiðandi framleiðslufyrirtæki fyrir sjónvarp og kvikmyndir á Íslandi, og hefur frá árinu 2016 skapað og afhent vandað efni á alþjóðamarkaði. Fyrirtækið hefur hlotið yfir 50 verðlaun bæði heima og erlendis. Árið 2023 framleiddi Glassriver yfir helming allra leikinna sjónvarpsþátta á Íslandi.

Verkefnalisti Glassriver inniheldur m.a. glæpaspennuþættina Cold Haven, átta þátta seríu í samframleiðslu við portúgalska SPi SA, sem nú er í eftirvinnslu, og íslensk-finísku loftslagsminiseríuna Avalanche. Nýjustu útgáfur fyrirtækisins eru m.a. verðlaunaþættirnir Black Sands, sem frumsýndir voru á Berlinale og hafa verið keyptir til allra Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Spánar, Portúgals, Hollands, Belgíu, Lúxemborgar og fleiri landa.

Glassriver vinnur með alþjóðlegum dreifingaraðilum og samframleiðendum að yfir 20 kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum sem spanna allt frá gamanefni til vísindaskáldskapar.


Um Arnald Indriðason

Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur Íslands á heimsvísu. Hann hefur selt yfir 20 milljónir bóka um allan heim – afrek sem enginn annar íslenskur rithöfundur hefur náð. Verk hans hafa verið þýdd á 45 tungumál og hafa þar með náð til lesenda um allan heim.

Utan Íslands er hann þekktastur fyrir glæpasögurnar um þunglyndislega rannsóknarlögreglumanninn Erlend Sveinsson.

Serían hefur hlotið einstaka viðurkenningu, þar á meðal helstu glæpasagnaverðlaun heims. Arnaldur hefur fengið Glass Key verðlaunin tvö ár í röð (2002 og 2003) og CWA Gold Dagger, virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands, fyrir bókina Grafarþögn árið 2005.

Hann hefur einnig hlotið æðstu íslensku viðurkenningar, þar á meðal Fálkaorðuna fyrir framlag sitt til íslenskrar bókmenningar og Jónas Hallgrímsson verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslenskrar tungu.

Alþjóðlegt lof hans spannar heimsálfur – allt frá frönsku verðlaununum Grand Prix de Littérature Policiere og Grand Prix des Lectrices de Elle, til japönsku Honyaku Mystery Award og pólsku Great Caliber Award of Honour fyrir ævistarf sitt. Árið 2024 hlaut skáldsagan hans Kóngurinn og klukkusmiðurinn þýsku verðlaunin Histo Couch Award sem besta sögulega skáldsagan.

INNskráning

Nýskráning