Rit- og myndhöfundurinn Linda Ólafsdóttir hefur verið tilnefnd til Þýsku barnabókmenntaverðlaunanna, Deutschen Jugendliteraturpreis, 2025 fyrir bók sína Ég þori! Ég get! Ég vil! Þegar íslenskar konur höfðu svo hátt að allur heimurinn heyrði í þeim. Bókin er myndlýst saga um kvennafrídaginn árið 1975, daginn sem konur gengu út af heimilum sínum, skólum og vinnustöðum og kröfðust jafnréttis og breytinga.
Tilnefningarnar voru tilkynntar á nýafstaðinni bókamessu í Leipzig og á bókamessunni í Frankfurt í október kemur í ljós hverjir hljóta verðlaunin sem þykja þau virtustu í Þýskalandi. Þýska útgáfan af bókinni um kvennafrídaginn er tilnefnd í flokki sögutengdra bóka.
Í umsögn dómnefndar segir: Linda Ólafsdóttir fjallar á áhrifaríkan og aðgengilegan hátt um kvenréttindamál. Hún vekur með bók sinni næmni barna fyrir jafnrétti og félagslegu réttlæti og styrkir réttlætiskennd þeirra. Linda útskýrir á skýran og kröftugan hátt mikilvæga félagslega hreyfingu sem hefur haft áhrif á heiminn og undirstrikar mikilvægi lýðræðislegrar þátttöku í samfélaginu. Anna Schaub hefur þýtt bókin afbragðsvel úr ensku.“
Der Tag, als die Frauen streikten var gefin út af þýska forlaginu Prestel en bókin kom upphaflega út hjá Forlaginu. Hún hefur auk þess komið út hjá Abrams Books í Bandaríkjunum og er japönsk þýðing jafnframt væntanleg síðar á árinu.
Auk tilnefningarinnar til Þýsku barnabókaverðlaunanna hefur Linda hlotið fjölda viðurkenninga fyrir bókina. Myndlýsingarnar voru valdar inn á hina virtu sýningu Society of Illustrators í New York og einnig inn á barnabókamessuna í Bologna á Ítalíu. Nýlega hlaut bókin einnig Septima P. Clark Women in Literature Book Award, verðlaun sem tileinkuð eru framúrskarandi bókum fyrir börn og ungmenni um afrek kvenna. „Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu”, segir Linda Ólafsdóttir. „Að vera tilnefnd til þessara verðlauna úr hópi svo margra öflugra rit- og myndhöfunda er mér mjög mikill heiður og þá sérstaklega fyrir bók um kvenréttindi og íslensku konurnar sem tóku sér frí fyrir fimmtíu árum síðan. Nú þegar við fögnum kvennaári og hálfrar aldar afmæli kvennafrídagsins þá vona ég auðvitað að hróður og hróp íslenskra kvenna heyrist sem víðast!“


Um Lindu Ólafsdóttur:
Linda Ólafsdóttir hefur myndlýst fjölda bóka, má þar nefna Íslandsbók barnanna, Reykjavík barnanna, Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum, Draumaþjófinn og hennar eigin höfundaverk, bókina um kvennafrídaginn, Ég þori! Ég get! Ég vil!, og Play? eða Leika?, en báðar bækurnar hafa komið út bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi og hafa verið þýddar á fleiri tungumál. Linda myndlýsti bókina Mindi and the Goose eftir hinn heimsþekkta rithöfund Sam McBratney en hún er gefin út af Walker Books og Candlewick.
Linda hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín. Hún hefur tvisvar verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og verið sæmd Fjöruverðlaununum jafn oft auk þess sem hún hefur hlotið verðlaun Félags íslenskra teiknara og í þrígang Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur. Hún hefur tvisvar verið tilnefnd til Astrid Lindgren Memorial Awards og fyrir Íslandsbók barnanna hlaut hún heiðurssæti á heimslista IBBY.
