Auður og Unnur ræða Sölku Völku í Bókahillunni

Bókahillan, hlaðvarp Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, er komið í loftið.

Í fyrsta þætti Bókahillunnar ræða Auður Jónsdóttir rithöfundur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Umfjöllunin spannar tvo þætti þar sem þær kafa ofan í söguna, persónurnar og samfélagið sem verkið lýsir, auk þess að ræða áhrif bókarinnar og hvers vegna hún á enn jafn sterkt erindi við lesendur í dag. Í samtalinu fara þær einnig um víðan völl og ræða bókmenntir, leikhús, sköpun og lífið sjálft.

Nýlega kom Salka Valka út í glæsilegri nýrri útgáfu hjá Forlaginu. Verkið er ein þekktasta skáldsaga Halldórs Laxness og kom fyrst út í tveimur bindum á árunum 1931–1932. Bókin hefur síðan skipað sér sess meðal mikilvægustu verka íslenskra bókmennta.

Unnur Ösp hefur fært Sölku Völku á svið í leikgerð sem hún samdi sjálf og flytur. Einleikur hennar um Sölku Völku er sýndur á Söguloftinu í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Fyrri þátturinn er kominn í loftið – og sá síðari væntanlegur fljótlega.

🎧 Hlusta á þáttinn

📖 Skoða bókina

🎭 Skoða sýninguna

INNskráning

Nýskráning