Rán Flygenring, höfundur teiknimyndabókarinnar Ógæfa sem hún gerði með Hugleiki Dagssyni, hlaut á dögunum verðlaun í flokki almennra myndskreytinga á verðlaunaafhendingu FÍT, Félags íslenskra teiknara. Óskum við henni innilega til hamingju með verðlaunin!
Ógæfa kom út fyrir jólin og vakti töluverða athygli enda útlit sem og innihald bókarinnar sérlega áhugavert en káputexti bókarinnar lýsir henni sem svo:
„Einu sinni á ágústkveldi … byrjaði fólk að éta hvert annað á djamminu.
Ógæfa er saga um ást, ölæði og uppvakning. Hugleikur Dagsson skrifar. Rán Flygenring teiknar. Páll Óskar Hjálmtýsson fer með aðalhlutverkið.
Þarf að segja meira?“