Bækurnar Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur og Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur hlutu Fjöruverðlaunin í dag þegar verðlaunin voru afhent í tuttugasta sinn.
Fjöruverðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi bækur eftir konur og kvár á Íslandi og eru afhent í þremur flokkum: fagurbókmenntum, fræðibókum og barna- og unglingabókum.

Silfurgengið – Brynhildur Þórarinsdóttir
Silfurgengið hlaut Fjöruverðlaunin í flokki barna- og unglingabóka. Í bókinni er fylgst með Sirrýlei, fimmtán ára stúlku sem glímir við vináttu, fjölskyldusögu og þau stóru og smáu mál sem fylgja því að vera á unglingsaldri. Sagan spannar þrjár kynslóðir og dregur upp hlýja og spennandi mynd af tengslum fortíðar og nútíðar.
Brynhildur er einn reyndasti barnabókahöfundur landsins og hefur í gegnum árin skrifað fjölda vinsælla bóka fyrir unga lesendur.

Hvalbak – Maó Alheimsdóttir
Ljóðabókin Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur hlaut Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta. Bókin er ljóðræn og áhrifamikil sýn á tengsl manns og náttúru þar sem jökull, landslag og tungumál fléttast saman í myndræn og kraftmikil ljóð.
Í bókinni er dregin upp sterk mynd af síbreytilegu íslensku landslagi þar sem jökullinn hopar og eftir standa sorfnar klappir – hvalbök – sem verða tákn um tímann, náttúruna og umbreytingar.

Mikil viðurkenning
Við hjá Forlaginu óskum Brynhildi og Maó hjartanlega til hamingju með verðlaunin. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að verk þeirra hafi hlotið þessa virtu viðurkenningu og við erum stolt af því að hafa gefið bækurnar út.
