Skólastjórinn, Lokar augum blám og Blái Pardusinn: Hljóðbók hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV. Verðlaunahafar á vegum Forlagsins voru Sigrún Pálsdóttir, Margrét Höskuldsdóttir, Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir.

Í umsögn dómnefndar segir:

Skáldsögur: Blái pardusinn: Hljóðbók eftir Sigrúnu Pálsdóttur

Blái pardusinn er djörf formtilraun í íslenskum bókmenntum. Bókin ber undirtitilinn Hljóðbók, sem vísar til vinsællar sagnamiðlunar í seinni tíð en hún á sér jafnframt eldri fyrirmyndir, til dæmis í útvarpi og við rúmstokk barna. Í verki Sigrúnar er hljóðið flutt yfir í bókartexta, í verki þar sem þrír hlustendur bókarinnar koma við sögu. Tvö þeirra hafa reyndar misst af drjúgum hluta hennar en þriðji hlustandinn kemur þeim til aðstoðar og þar með má segja að hugtakið „hljóðbók“ hafi teygt sig yfir í endursögn og samræður um inntak og gildi skáldverka, í þessu tilviki um örlög aðalpersónunnar, einfarans og heimskonunnar Lönu Marteinsdóttur. Hún stóð á sínum tíma frammi fyrir brothættri heimsmynd á sögulegum átakatímum; mynd sem er um margt að teiknast upp að nýju um þessar mundir. Á einum stað í textanum er vikið að „skurðpunkti skáldskapar og sagnfræði“ og sagan sjálf spyr ögrandi spurninga um einmitt þennan skurðpunkt sem og hin ýmsu tengsl sögulegs skilnings, máttar skáldskaparins og lífsferils mannverunnar. Blái pardusinn er ögrandi og spennandi bók – og það gildir um hana, eins og lífið, að lesandi fær ekki að vita allt.

Blóðdropinn: Lokar augum blám eftir Margréti Höskuldsdóttur.

Skáldsagan Lokar augum blám gerist á sjö dögum á Vestfjörðum. Hvarf tveggja manna ýtir af stað lögreglurannsókn. Í stuttum og snörpum köflum kynnast lesendur umtalsverðum fjölda fólks á ýmsum stöðum. Innbyrðis tengsl kaflanna skýrast smám saman og með þeim fléttar höfundar atburðarás vikunnar haganlega, ásamt atriðum úr forsögu og fyrri kynnum persónanna. Velheppnað raunsæissnið sögunnar byggist meðal annars á hinu vestfirska umhverfi sem höfundur endurskapar af staðarþekkingu og næmni sem skilar sér í vel skrifuðum texta. Spennan í verkinu er hins vegar tengd tímanum. Hann lætur ekki hemja sig og  teygir sig út fyrir viðburði þessarar viku, aftur í fortíð þar sem reynast vera sár og draugar er virðast ætla að vakna til nýs lífs.

Barna og ungmennabækur: Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson og Elínu Elísabetu Einarsdóttur myndhöfund.

Hið ómögulega gerist: 12 ára drengur, Salvar að nafni, sækir um embætti skólastjóra og fær starfið. Með lista fullan af hugmyndum og viljann að vopni reynir hann sitt besta til að bæta líðan nemenda, til dæmis með því að hafa kandífloss í hádegismat og grís í hverjum bekk. Þetta er galsafengin og bráðskemmtileg en einnig vel unnin og íhugul saga um lykilstofnun þjóðfélagsins, þar sem börn, unglingar, skólastarfsfólk og foreldrar eiga mikilvæg og margvísleg samskipti. Lesendur eru jafnframt hvattir til umhugsunar um vald, skilning, ábyrgð, viðmót og samvinnu á slíkum stað. Persónur bókarinnar eru fjölbreyttar og marglaga en eiga það sameiginlegt að vilja gera það sem er skólanum fyrir bestu, þótt þær séu ekki endilega sammála um brýnustu viðfangsefnin hverju sinni.

INNskráning

Nýskráning