Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsir eftir óútgefnum handritum að myndríkum bókum til að keppa um Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin. Lengd handrits og efnistök eru frjáls, senda má inn myndabók fyrir yngstu börnin, myndasögu fyrir unglinga og allt þar á milli. Nánari upplýsingar um keppnisreglur má nálgast hér.
Skilafrestur er til 15. október 2025.
Sigurhandritið kemur út á bók haustið 2026 og höfundur hlýtur auk þess 1.500.000 krónur í verðlaunafé.
Sigurvegari síðasta árs er nú að leggja lokahönd á verðlaunabókina sína og við getum ekki beðið eftir að fá að kynna hana fyrir íslenskum bókaormum í haust!