Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva.

Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt.

Í þættinum segir Sævar einnig frá tilurð nýju bókarinnar Sólmyrkvar. Bókin er myndskreytt af Elíasi Rúna og sólmyrkvagleraugu fylgja hverju eintaki.

Hægt er að hlusta á Bókahilluna á vef Forlagsins og í öllum helstu hlaðvarpsforritum.

🎧 Hlusta á þáttinn

📖 Skoða bókina

INNskráning

Nýskráning