Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2025

Í vikunni voru tilkynntar tilnefningar vegna Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í Iðnó. Þar átti Forlagið marga glæsilega fulltrúa.

Frumsamin skáldverk

Myndlýsingar

Þýðingar

Skúli Þór Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs veitti tilnefningarnar en alls eru fimm bækur tilnefndar í þremur flokkum.  Í dómnefnd sátu Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Arngrímur Vídalín, skipaður af Rithöfundasambandi Íslands og  Bergrún Adda Pálsdóttir, skipuð af Félagi íslenskra teiknara. 

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar verða veitt við hátíðlega athöfn í Höfða, þann 23. apríl og mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenda verðlaunin. 

Umsagnir um bækur Forlagsins má finna hér:

Ég og Milla – Allt í köku: Þýðing:

Jón St. Kristjánsson er tilnefndur fyrir þýðingu sína á bók Anne Sofie Hammer Ég og Milla, allt í köku. Á titilsíðunni efst uppi í horninu stendur, „verulega góð lesning þessa leið“ og innan sviga (trúið mér – broskall). Og dómnefndin getur tekið undir það.

Kúkur, piss og prump: frumsamið og myndlýsing

Hér er titill sem getur ekki klikkað. Hér er á ferðinni fimmta léttlestrarbókin í hinum frábæra vísindalæsisflokki þeirra Sævars Helga Bragasonar og Elíasar Rúna. Textinn og myndlýsingin koma saman á fróðlegan og skemmtilegan hátt í samspili sem er stærra en summa hlutanna tveggja. Bókin er aldrei ónauðsynlega groddaleg, hún er eins fróðleg og hún er fyndin, og jafnvel fólk sem telur sig hafið yfir þermistigið mun njóta lestursins. Það hefur sjaldan verið eins gaman að fræðast.

Kúkur, piss og prum er alveg frábærlega myndlýst af Elíasi. Í bókinni eru teikningarnar svo fjölþættar og nýta virkilega víðtæku möguleika teikninga; hvernig þær vinna með textanum, fjölbreytnin og smáatriðin, og hvernig þær innihalda sínar eigin skemmtilegu og fróðlegu frásagnir. Það er eitt að tala um kúk, piss og prump og annað að sýna það í mynd, en hér er það gert á frábæran og fyndinn hátt.

Stórkostlega sumarnámskeiðið: frumsamið

Bækur Tómasar Zoëga og Sólrúnar Ylfu um vinina Pétur og Stefaníu eru ærið sérstakar. Skemmtilegur teiknistíllinn vekur strax athygli og svo er sagan sjálf óvænt, sniðug, hjartnæm og fyndin. Stórkostlega sumarnámskeiðið er frumleg bók um dularfull áform barna sem reynast eiga sér skýringar úr fullorðinsheiminum, og allt er þetta listilega samofið í fallega og góða sögu um sakleysi bernskunnar og hina ýmsu erfiðleika sem geta steðjað að.

Kasia og Magdalena: Frumsamið

Hildur Knútsdóttir hefur fyrir allnokkru getið sér orð fyrir að skrifa vandaðar og krefjandi bækur fyrir ungmenni, og Kasja og Magdalena er engin undantekning á því. Hér fjallar Hildur af dirfsku og næmni um gríðarlega erfið málefni sem ekki er oft tæpt á í ungmennabókum, og frá fyrstu síðu heldur bókin lesanda. Þar skiptir persónusköpun Hildar miklu og þá ekki síst samúð lesanda gagnvart söguhetjunni.

Risaeðlugengið: leyndarmálið: þýðing:

Þegar stærðfræðingurinn í Júragarðinum lýsti því yfir að náttúran fyndi sér alltaf leið þá efast ég um að hann hafi séð fyrir Risaeðlugengið eftir þá Lars Mæle og Lars Rudebjer. Þessi stórskemmtilega saga er þýdd af Æsu Guðrúnu Bjarnadóttur og Sverri Jakobssyni og segir frá ævintýrum grameðlufjölskyldunnar og vina Gauta grameðlu sem eru af ýmsum toga.

Skrímslaveisla: Myndlýsing

Eins og sagan og persónurnar sem við þekkjum nú svo vel kalla á þá svara myndirnar með þessari frábærri orku sem fær virkilega að njóta sín. Litirnir skærir, formin fjölbreytt, kræsilegar veitingar og glæsileg veisluhöld. Jafnframt fylgjumst við með tilfinningum skrímslanna og ekki er annað hægt en að upplifa á sama tíma pirringinn, vináttuna og fögnuðinn. Sannkölluð myndaveisla.

INNskráning

Nýskráning