Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar 2025 voru tilkynntar í Gunnarshúsi í vikunni og þar voru tveir höfundar Forlagsins á blaði, Sigurbjörg Þrastardóttir og Anton Helgi Jónsson . Við óskum Antoni og Sigurbjörgu innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Umsögn dómnefndar má nálgast hér:
Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir
„Í Flaumgosum dregur Sigurbjörg Þrastardóttir nýjar og oft býsna skemmtilegar línur í þann skáldskaparheim sem hún hefur skapað í fyrri verkum. Ljóðin eru mörg hver galsafengin og fyndin, myndirnar lævísar og tónninn leikandi á mörkum kankvísi og kaldhæðni. Í eins konar kómedíu úr heimi hversdagsins er furðan aldrei langt svo hárfín spennan milli ljúfsemdar og launráða skapar heildstætt safn ljóða sem gaman er að lesa,“ segir í umsögn dómnefndar.
Ég hugsa um mig – Anton Helgi Jónsson
„Að lesa bókina Ég hugsa um mig er eins og að fara í partý og heyra brot úr mörgum skemmtilegum samtölum um það sem hefur drifið á daga fólks í gegnum lífið. Bókin fjallar um hvernig við metum okkur sjálf og sambönd okkar við aðra og hvernig við reynum að ná sátt þegar við lítum til baka,“ segir í umsögn dómnefndar.
Rithöfundasambandið og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn standa að verðlaununum. Gjaldgengar til verðlaunanna eru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur sem skilað var til Landsbókasafnsins árið 2024.
Smelltu á bækurnar hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um þær:

