Að skilja heiminn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 298 | Verð 2.090 kr. |
Að skilja heiminn
Verð 2.090 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 298 | Verð 2.090 kr. |
Um bókina
Einar Benediktsson er einn af okkar reyndustu sendiherrum. Hann starfaði í utanríkisþjónustunni í tæpa fjóra áratugi og var sendiherra í Genf, París, London, Brussel, Osló og Washington. Í utanríkisþjónustunni sinnti Einar mjög samskiptum Íslands við aðrar Evrópuþjóðir – allt frá aðildinni að EFTA til EES-samningsins. Gerðist Einar snemma eindreginn talsmaður þess að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu. Í þessari bók bregður Einar upp einstökum myndum af lífi og starfi stjórnarerindreka á viðburðatímum, ekki síst í París þar sem hann dvaldi lengst. Hann lýsir æsku sinni í Reykjavík kreppu- og styrjaldarára, segir frá foreldrum sínum, hinum goðsagnakennda afa sem hann var heitinn eftir og forvitnilegum örlögum ættmenna sinna, svo sem föðursystkina og frændfólks af Ráðagerðisætt á Nýja-Sjálandi. Yfir frásögninni allri er viðfeldinn blær manns sem ekki aðeins hefur verið virkur þátttakandi í straumum og stefnum síns tíma heldur hefur gert sér far um að skyggnast undir yfirborðið – og skilja heiminn