Afleiðingar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 152 90 kr.
spinner

Afleiðingar

90 kr.

Afleiðingar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 152 90 kr.
spinner

Um bókina

Ákvarðanir okkar hafa afleiðingar. Verslunarstjóri í raftækjaverslun stígur örlagaríkt skref: Hvenær svíkur maður sjálfan sig og hvenær svíkur maður aðra? Útgáfustjóri hjá bókaforlagi misnotar aðstöðu sína með skelfilegum afleiðingum. Mæðgin fara í kirkjugarðinn í byrjun aðfangadagskvölds á biluðum bíl því það verður alltaf að loga ljós á leiðum ástvina yfir jólin. Ung stúlka verður leiksoppur kerfisins og karlmanna.

Þetta eru nokkur dæmi um söguefni í þessu nýja smásagnasafni Ágústs Borgþórs Sverrissonar. Fjölbreyttar, beinskeyttar sögur,ýmist úr nútímanum eða kunnuglegri fortíð Reykjavíkur. Sumar gerast á því augnabliki þegar óvænt rof verður á vanagangi tilverunnar og hið ófyrirsjáanlega heldur innreið sína inn í líf persónanna. Um leið veita sögurnar lesandanum nýja sýn á tilveruna, eins og góður skáldskapur á að gera.

Ágúst Borgþór Sverrisson á fjölbreyttan ritferil að baki. Síðasta bók hans, spennusagan Inn í myrkrið, hlaut góðar viðtökur en undanfarin misseri hefur hann vakið athygli fyrir snörp fréttaskrif á vef DV.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning