Dýrin – leiðsögn í máli og myndum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 618 13.490 kr.

Dýrin – leiðsögn í máli og myndum

13.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 618 13.490 kr.

Um bókina

Dýrin leiðsögn í máli og myndum er mikið verk, hrífandi og fræðandi lesning fyrir alla sem unna vandaðri umfjöllun um náttúruna – lærða jafnt sem leika. Bókin er sneisafull af fróðleik og leitast er við að lýsa og skilgreina veröld dýranna frá öllum hliðum. Hún er leiðarvísir um dýraríki jarðar, frá stærstu spendýrum til smæstu hryggleysingja. Fegurð og fjölbreytileiki dýranna birtist hér í einstæðum ljósmyndum, glöggum skýringarmyndum og greinargóðum texta.

Dýrin hefst á yfirliti um alla þætti dýralífs og vikið er að því hvernig dýr greinast frá öðrum lífverum. Fjallað er um líkamsgerð dýra, æviskeið þeirra, þróun og atferli. Einnig eru grundvallarþættir flokkunarfræði skýrðir. Þá er rækilega farið yfir búsvæði dýranna, bent á hvernig þau hafa lagað sig að ólíku umhverfi og ennfremur greint frá því helsta sem ógnar tilveru þeirra nú. Meginuppistaða bókarinnar er síðan lýsing meira en 2.000 dýrategunda, byggð á nýjustu rannsóknum sérfræðinga.

Aðalritstjóri bókarinnar, Davið Burnie, stundaði nám í dýrafræði við háskólann í Bristol í Bretlandi. Alls hefur Burnie samið og lagt efni til um 75 bóka, samið handrit fjölmargra náttúrulífsmynda og veitt faglega ráðgjöf við gerð sjónvarpsþátta.

Guðni Kolbeinsson, þýðandi bókarinnar, er einn afkastamesti þýðandi landsins og hefur um árabil þýtt fræðsluefni og skáldskap fyrir sjónvarp og til útgáfu. Örnólfur Thorlacius, faglegur ritstjóri bókarinnar, hefur um langt skeið verið kunnur fræðari og þýtt og frumsamið margvíslegt fræðslu- og vísindaefni.

INNskráning

Nýskráning