Hús og híbýli á Hvammstanga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2021 | 287 | 8.490 kr. |
Hús og híbýli á Hvammstanga
8.490 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2021 | 287 | 8.490 kr. |
Um bókina
Hvammstangi er þéttbýlisstaður sem byggðist upp á fyrri hluta 20. aldar sem aðalverslunar- og þjónustustaður fyrir Vestur-Húnavatnssýslu. Í bókinni rekur Þórður Skúlason þróun byggðar á Hvammstanga frá 1898 til 1972, sögu um 180 húsa á Hvammstanga -húsa sem enn standa og einnig þeirra sem hafa horfið af sjónarsviðinu í tímans rás. Sagan er krydduð með kátlegum mannlýsingum og fróðlegum lýsingum á mannlífi fyrri tíðar á Hvammstanga. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af húsum og umhverfi, bæði gömlum og nýjum.
Höfundur bókarinnar, Þórður Skúlason, hefur ritað fjölmargar greinar í blöð og tímarit og árið 2013 kom út þýðing hans á skáldsögunni Heimsins besti bær eftir Arto Paasilinna sem Skrudda gaf út. Þórður bjó og starfaði á Hvammstanga í 47 ár og gegndi m.a. starfi sveitarstjóra hreppsins í 20 ár. Á búsetuárum sínum á Hvammstanga öðlaðist hann því yfirgripsmikla þekkingu á sögu og þróun byggðar á staðnum.