Íslendingasögur og Íslendingaþættir: heildarútgáfa í 5 bindum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Pakkar 2018 35.990 kr.
spinner

Íslendingasögur og Íslendingaþættir: heildarútgáfa í 5 bindum

35.990 kr.

Íslendingasögur og Íslendingaþættir: heildarútgáfa í 5 bindum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Pakkar 2018 35.990 kr.
spinner

Um bókina

Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson. Útgáfan er skreytt 40 myndum eftir dönsku listakonuna Karin Birgitte Lund.

Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir 51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formálar sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýringar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda sem varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn og verjur. Þá fylgir útgáfunni sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum, haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunnindum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reimleikum svo nokkur dæmi séu nefnd.

Bækurnar fimm er einstaklega vandaðir prentgripir í vandaðri öskju.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning