Kakkalakkarnir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 378 | 2.790 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 378 | 2.790 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Ung vændiskona finnur sendiherra Noregs myrtan á mótelherbergi í Bangkok. Drykkfelldi rannsóknarlögreglumaðurinn Harry Hole er sendur til Taílands til þess að finna hinn seka og afstýra hneyksli á landsvísu. Sendiherrann var nefnilega góðvinur forsætisráðherrans. Fljótlega kemur í ljós að málið er flóknara en í fyrstu var talið og Harry og taílenskt samstarfsfólk hans flækist á milli norskra diplómata, ópíumbæla og karaókíbara í steikjandi hita borgarinnar.
Bækur Jos Nesbø hafa selst í milljónum eintaka um allan heim. Kakkalakkarnir er önnur bókin í flokknum um Harry Hole en sú níunda sem kemur út á íslensku.
Kristín R. Thorlacius þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 13 klukkustundir og 2 mínútur að lengd. Orri Huginn Ágústsson les.
* * * * *
„Spennandi og trúverðug …“
VG
„Nesbø er meistari á sínu sviði. “
Kolbrún Bergþórsdóttir / DV
„Sannfærandi og hörkuspennandi.“
Booklist
„Ein best heppnaða skáldsaga Nesbøs.“
Financial Times