Made in Iceland – Deutsch

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.990 kr.
spinner

Made in Iceland – Deutsch

2.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Ljósmyndabækur metsöluhöfundarins Sigurgeirs Sigurjónssonar hafa borist víða um heiminn, enda hafa bækur hans verið gefnar út á fjölmörgum tungumálum og lengi verið meðal vinsælustu landkynningarbóka á Íslandi. Nægir að nefna titla eins og Ísland – landið hlýja, Amazing Iceland, Íslandssýn/Lost in Iceland og Landið okkar/Found in Iceland.

Made in Iceland/Innan lands ber öll einkenni höfundar síns; þar er að finna stórfenglegar landslagsmyndir út öllum landshlutum og eftirminnilegar mannlífsmyndir. Listfengi Sigurgeirs og næm tilfinning fyrir birtu einkennir bókina ásamt fundvísi og frumleika í vali á myndefni.

Dorritt Mousaieff, forsetafrú, skrifar inngangsorð að bókinni. Þar segir m.a.: ,,Ísland er dæmi um land í mótun. Í jarðfræðilegu tilliti er það yngsta land jarðar. Hér er enginn dagur öðrum líkur og hvergi er hægt að verða vitni að annarri eins sköpun – bæði í náttúrunni og hjá fólkinu.“

Þessi bók er í mjúku bandi og handhægu broti og er tilvalin gjöf til vina og viðskiptavina heima og erlendis. Hún kemur út á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, frönsku og þýsku.

INNskráning

Nýskráning