Meeting with monsters

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 135 4.290 kr.
spinner

Meeting with monsters

4.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 135 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Íslenskur þjóðsagnaarfur geymir aragrúa frásagna um furðudýr og ferlegar ófreskjur. Þessar skepnur skutu landsmönnum skelk í bringu á fyrri öldum en næsta hljótt hefur verið um þær upp á síðkastið, flestar alla vega.

Í bókinni eru rifjaðar upp helstu þjóðsögur og sagnir um þessi kynjadýr og meðal annars stuðst við fjölda munnlegra heimilda. Skepnunum og sérkennum þeirra eru gerð nákvæm og glögg skil í texta og birtingastaðir sýndir á korti. Loks varpa einstæðar myndir nýju ljósi á þennan merkilega þátt í þjóðarsögunni.

Jón Baldur Hlíðberg myndlistarmaður er löngu landskunnur fyrir dýrafræðimyndir sínar sem prýtt hafa fræðirit og margvíslegt fræðsluefni á undanförnum árum. Hér spreytir hann sig á nýjum vettvangi. Sigurður Ægisson er þjóðfræðingur og guðfræðingur að mennt og hefur í gegnum tíðina skrifað jöfnum höndum um náttúrufræði, þjóðfræði og guðfræði. Íslenskar kynjaskepnur er þriðja samstarfsverkefni þeirra félaga en fyrr hafa þeir gefið út í sameiningu Ísfygla: íslenskir fuglar = aves islandicæ og Íslenskir hvalir fyrr og nú.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning