Núll núll 9

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 Original price was: 3.390 kr..Current price is: 690 kr..
✓
spinner

Núll núll 9

Original price was: 3.390 kr..Current price is: 690 kr..

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 Original price was: 3.390 kr..Current price is: 690 kr..
✓
spinner

Um bókina

Sumarið eftir tíunda bekk snýst líf Jóels, Álfhildar, Tomma og Hildigunnar um sumarvinnu, fótbolta, óvæntar uppákomur og einlæg samskipti. Allt gengur sinn vanagang þangað til Ania birtist. Hún er ólík öllum sem Jóel hefur hitt og eftir að hún sest fyrirvaralaust við borðið hans á Bláu könnunni rekur hver furðulegi atburðurinn annan. Og tölvan sem Jóel situr uppi með eftir að Ania lætur sig hverfa geymir vísbendingar sem varða framtíð Íslands.

Fáir hafa slegið jafnrækilega í gegn meðal lesenda á unglingsaldri og Þorgrímur Þráinsson. Með núll núll 9 fylgir hann eftir bókunum Svalasta 7an og Undir 4 augu sem notið hafa gríðarlegra vinsælda.

***
„Bókin er spennuþrungin og mjög skemmtileg.
Maður leggur bókina ekki frá sér fyrr en hún er búin og er hún tilvalin í jólapakka fyrir unglinga.“

Marta María Arnarsdóttir, 13 ára / pressan.is

***
„Þorgrímur er flinkur sögumaður … hér er hvergi dauður punktur, æsingurinn heldur áfram og verður æ alþjóðlegri í sniði.“

Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið

„Spennusagan og saga Jóels mynda umgjörð um mjög skýran boðskap, annars vegar til þjóðarinnar um að standa vörð um auðlindir sínar og gefa ekki höggstað á sér á tímum kreppu og hins vegar boðskapurinn um að hetjuskapur og hugrekki felast ekki í ytra byrði, umbúðum eða ofurgræjum á borð við þær sem James Bond býr yfir. Hvað hina hversdagslegu hlið sögunnar varðar er Þorgrímur algjörlega á heimavelli og greinilegt að hann kann vel að skrifa góða unglingasögu. … ég vil endilega lesa meira um unglingspiltinn Jóel, sem ég held að sé geðugasta ungmenni sem ratað hafi í unglingabók fyrr og síðar.“
Guðríður Sigurbjörnsdóttir / bokmenntir.is

Tengdar bækur

Original price was: 2.290 kr..Current price is: 1.290 kr..
Original price was: 4.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
690 kr. – 1.990 kr.
Allt hold er hey
990 kr. – 1.990 kr.
Hjálp
690 kr. – 1.490 kr.
Ertu guð afi? eftir Þorgrím Þráinsson
990 kr. – 3.190 kr.
Tár, bros og takkaskór
690 kr. – 3.390 kr.
Fíllinn fljúgandi
Original price was: 3.390 kr..Current price is: 990 kr..
Henri rænt í Rússlandi
690 kr. – 1.490 kr.
Henri hittir í mark
690 kr. – 1.490 kr.
1.999 kr. – 4.290 kr.
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 1.890 kr..Current price is: 1.299 kr..
Original price was: 4.990 kr..Current price is: 2.999 kr..
4.490 kr.
Original price was: 9.990 kr..Current price is: 4.999 kr..
2.490 kr.
999 kr. – 3.890 kr.
Original price was: 2.690 kr..Current price is: 2.190 kr..
2.690 kr.
2.499 kr. – 2.999 kr.

INNskráning

Nýskráning