Ofríki – Ágrip af sögu fjölskyldu 1860-1965

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 150 2.990 kr.
spinner

Ofríki – Ágrip af sögu fjölskyldu 1860-1965

2.990 kr.

Ofríki
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 150 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Fyrir liðlega einni öld gerði bóndinn á Randversstöðum í Breiðdal uppreisn gegn yfirvöldum í Breiðdalshreppi. Ástæðan var sú að yfirvöldin komu í veg fyrir að geðsjúk eiginkona hans fengi að leita sér lækninga og reyndu í framhaldinu að bola honum burt úr héraðinu. Ofríki er mögnuð saga frá umbrotaskeiði í lífi þjóðarinnar þegar hillir undir nýja tíma og ný viðhorf, meðal annars með stofnun Kleppsspítala í Reykjavík, en framkoma við fátæklinga ræðst þó enn af gamalgróinni vinnukergju stórbænda, þar sem smælingjarnir mega sín lítils gagnvart ofríkinu.

Barátta Ólafs Ásgrímssonar er merkileg fyrir þær sakir að hann veitti yfirvöldunum svo harðsnúið viðnám að þau þurftu að beita öllum tiltækum lagakrókum til að koma honum undir, eins og lesa má í þeim 140 málsskjölum sem lögð voru fyrir sýslumann Vestur -Skaftafellssýslu til úrskurðar 1918.

Það var fáheyrt að fátækur alþýðumaður risi upp gegn yfirvöldunum. Sama áræðni og kjarkur fylgdi fjölskyldunni áfram og reyndist henni bjargvættur þegar þrítugan hamarinn var að klífa eins og sagt er frá í bókinni.

Ofríki er fjórða bók höfundar en fyrri bækur hans um uppvöxt í Strandasýslu og síldarár á Raufarhöfn sem komu út 2010 og 2011 hlutu góða dóma. 2013 sendu Jón og sonardóttir hans Ása Ólafsdóttir frá sér ævintýrabókina Allskonar sögur sem er fyrir börn á öllum aldri.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning