Ólæsinginn sem kunni að reikna

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 460 990 kr.
spinner
Kilja 2013 460 2.890 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Ólæsinginn sem kunni að reikna

490 kr.2.890 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 460 990 kr.
spinner
Kilja 2013 460 2.890 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner

Um bókina

Fimm ára gömul fer Nombeko Mayeki að vinna við að hreinsa kamra í Soweto í Suður-Afríku. Hún er óskólagengin og munaðarlaus en kemst til mannvirðinga í hreinsunardeildinni þegar í ljós kemur að þótt hún sé ólæs er hún ansi leikin með tölur.

Örlögin haga því svo að stúlkan úr fátækrahverfinu flækist inn í alþjóðlega stjórnmálarefskák, verður eftirlýst af alræmdustu leyniþjónustu veraldar og kynnist bræðrum á norðurslóðum sem eru nákvæmlega eins en þó gjörólíkir. Þá fer af stað ótrúleg atburðarás sem ógnar heiminum – eins og heimurinn hefur hingað til þekkt sig.

Ólæsinginn sem kunni að reikna er glæný bók eftir sama höfund og Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf sem hefur notið fádæma vinsælda á heimsvísu. Hér segir Jonas Jonasson aðra ærslafulla gamansögu með húmor og hlýju en beinir um leið spjótum gegn ofstæki og bókstafstrú, sem og þeirri grillu að manngildi fólks ráðist af litarhætti þess. Hann afsannar líka þá goðsögn að kóngar kunni ekki að afhausa hænur!

Páll Valsson þýddi.

INNskráning

Nýskráning