Steve Jobs – ævisaga

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2012 1.990 kr.
spinner

Steve Jobs – ævisaga

1.990 kr.

Steve Jobs - ævisaga
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2012 1.990 kr.
spinner

Um bókina

Ástríðufullur og knúinn áfram af einstæðri sýn á samruna tækni og fagurra lista var Steve Jobs sá einstaklingur á síðari hluta tuttugustu aldar sem hafði hvað mest áhrif á mótun samtímans eins og hann snýr að okkur frá degi til dags.

Hin sérstæða þráhyggja og óhvikula fullkomnunarárátta hans varð til þess að umbylta sex af veigamestu iðngreinum síðari tíma: einkatölvunni, teiknimyndum, tónlist, farsímum, spjaldtölvum og stafrænni útgáfu. En Jobs var ekki aðeins áhrifamikill forstjóri Apple og Pixar heldur barðist hann alla ævi við innri púka og spurningar sem leiddu hann á vit indverskra gúrúa og duttlungafullra lífsvenja sem höfðu mikil áhrif á líf hans og reyndu oft á fólkið í kringum hann.

Auk tuga viðtala við Jobs sjálfan ræddi höfundur bókarinnar, hinn þekkti ævisagnaritari Walter Isaacson, við fjölskyldu hans, ráðgjafa, keppinauta og samstarfsmenn – vini og varga – þar sem bæði kostir hans og gallar eru dregnir fram í kraftmikilli frásögn af einhverjum mestu samfélagsbreytingum síðari ára – hvernig einkatölvan breytti heiminum. Úr verður ekki aðeins áhugaverð ævisaga um einn litríkasta einstakling tæknialdarinnar heldur einnig menningarsaga samtímans eins og við þekkjum hann.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning