Molloy

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2001 1.490 kr.
spinner

Molloy

1.490 kr.

Molloy
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2001 1.490 kr.
spinner

Um bókina

Molloy er fyrsta skáldsagan eftir hinn heimsfræga rithöfund, Samuel Beckett, sem kemur út á Íslandi. Beckett er eflaust þekktastur fyrir leikrit sitt, Beðið eftir Godot, en flestir þeirra sem hafa fjallað um höfundinn og verk hans telja að skáldskapur hans rísi hæst í Molloy, snilldarlegri frásögn – og mjög fyndinni á köflum – af manni sem ferðast um á hjóli með stífan fót og hækjur í leit að móður sinni meðan staurfóturinn styttist og betri fóturinn stífnar. Sagan er draumkennd leiðsla gegnum tíma og rúm þar sem framvindan hverfist um bið, leit, minningar og minnisleysi – fánýti tilverunnar.

Bókin skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum segir Molloy sögu sína. Hann er tannlaus og illa til fara. Hann sefur á daginn og hugarstarfsemin virðist fyrst fara í gang þegar náttar – nákvæmlega eins og hjá Beckett. Í seinni hlutanum kemur Moran til sögunnar, sendur út af örkinni til að leita að Molloy.

Molloy var í hópi 100 bestu bóka allra tíma sem valdar voru árið 2002.

Höfundurinn hlaut Nóbelsverðlaunin 1969.

Tengdar bækur

Placeholder
kr.
1.390 kr.
3.190 kr.
1.390 kr.
4.590 kr.
5.790 kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
3.690 kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.

INNskráning

Nýskráning