Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 46 | 1.490 kr. |
Um bókina
Í ljóðbókinni Vonin er að finna ljóð og örsögur þar sem höfundur sækir innblástur í eigin lífsreynslu, sem og ímyndunarafl sitt. Textar Önnu Láru leika gjarnan á mörkum sorgar og gleði; ljóðin lýsa sárri lífsreynslu, ást, þrá, tælingu, missi og örvæntingu. Í örsögunum bregður hún á leik í fjölbreytilegum textum þar sem greina má bæði háð og skop, en einnig ljóðrænar stemmningar og ádeilu.
Vonin er fyrsta bók Önnu Láru Möller og mun allur ágóði af sölu bókarinnar renna til hjartadeildar Landspítala.
Feigðarflótti
Ég flýt ekki á fleka á Miðjarðarhafi
ég bý í fínu húsi í forréttindalandi
ég á ekki barn sem drukknaði í flæðarmáli
undan ströndum Túnis í dagég á barn sem leikur sér úti
og býr við forskot í lífi og lifir í táliAngi með andlit ofan í strandarsandi
endar sitt líf í ókunnu landiVið augnabliks áhorf á fréttir
súpum við hveljurhryllum okkur yfir veröldinni
og snúum okkur að öðru